Uppselt er á fyrri leik nóvemberglugga íslenska karlalandsliðsins komandi föstudag 11. nóvember gegn Georgíu í Laugardalshöllinni. Leikurinn er ansi mikilvægur fyrir liðið, en með sigri færi það langleiðina með að tryggja sig á lokamót HM á næsta ári.
Aðdáendur íslenska liðsins þurfa þó ekki að örvænta þó uppselt sé í Laugardalshöllina þar sem leikurinn verður í beinni útsendingu á RÚV.
Hérna er 16 leikmanna hópur Íslands
Seinni leikur gluggans fer fram ytra mánudaginn 14. nóvember gegn Úkraínu og verður hann leikinn í Riga í Lettlandi og hefst hann kl. 14:00 að íslenskum tíma (16:00 í Lettlandi) og verður í beinni útsendingu á RÚV2.
Umfjöllun Körfunnar um íslensku landsliðin er kostuð af Lykil