spot_img
HomeFréttirUndir 20 ára lið kvenna mætt til Búlgaríu "Förum stórhuga inní þetta...

Undir 20 ára lið kvenna mætt til Búlgaríu “Förum stórhuga inní þetta mót”

Undir 20 ára kvennalið Íslands mun á morgun laugardag 6. júlí hefja leik á Evrópumótinu í Sófíu í Búlgaríu, en mótið mun standa til 14. júlí. Fyrsti leikur Íslands er kl. 17:30 á morgun gegn Austurríki og mun hann vera í beinni vefútsendingu á heimasíðu mótsins. Myndir og fréttir frá liðinu munu einnig koma á samfélagsmiðla KKÍ á meðan mótinu stendur.

15 þjóðir taka þátt í B-deildinni í fjórum riðlum, stelpurnar okkar eru í riðli með Austurríki, Úkraínu og Búlgaríu. Eftir riðlakeppnina verður leikið um sæti 1.-8. og 9.-15. 31 þjóð tekur þátt í U20 EuroBasket kvenna , 16 bestu þjóðir Evrópu eru í A-deild og 15 þjóðir eru svo í B-deild.

Hérna er heimasíða mótsins

Ólafur Jónas Sigurðsson þjálfari liðsins hafði þetta að segja:

“Ég er mjög spenntur fyrir EM með þessum hópi. Þessar stelpur hafa lagt gríðarlega mikla vinnu á sig undanfarnar vikur og þær eru farnar að líta mjög vel út sem ein heild inná vellinum. Hópurinn hefur náð vel saman jafnt innan sem utan vallar. Norðurlandamótið var mjög gott mót þar sem við náðum að slípa okkur saman,  finna okkar styrkleika og veikleika sem við höfum náð að vinna vel í á undanförnum æfingum. Við förum stórhuga inní þetta mót og ætlum að sjálfsögðu að selja okkur dýrt. Fyrsta markmið er skýrt en það er að vinna riðilinn okkar og tel ég það vera mjög raunhæft markmið ef við náum að spila okkar leik í öllum þrem leikjum riðlakeppnunnar.”

Hópur Íslands:

Agnes Jónudóttir – Haukar

Agnes María Svansdóttir – Keflavík

Anna Lára Vignisdóttir – Keflavík

Bergdís Anna Magnúsdóttir – Fjölnir

Emma Hrönn Hákonardóttir – Þór Þorlákshöfn

Eva Wium Elíasdóttir – Þór Akureyri

Heiður Karlsdóttir – Fjölnir

Hekla Eik Nökkvadóttir – Grindavík

Jana Falsdóttir – Njarðvík

Krista Gló Magnúsdóttir – Njarðvík

Kristrún Ríkey Ólafsdóttir – Haukar

Sara Líf Boama – Valur

Þjálfari: Ólafur Jónas Sigurðsson

Aðstoðarþjálfarar: Ásta Júlía Grímsdóttir og Berglind Gunnarsdóttir

Sjúkraþjálfari: Sædís Magnúsdóttir

Fréttir
- Auglýsing -