Undir 20 ára karlalið hélt í fyrradag af stað til Portúgals á Evrópumót en Ísland er í B-deild þetta sumarið og gekk ferðalagið þeirra vel. Þar komu þeir sér fyrir og voru við æfingar í gær. Mótið hefst avo í kvöld.
Ísland leikur í A-riðli með Ungverjalandi, Írlandi, Hvíta-Rússlandi og Rússlandi. Eftir leiki í riðlinum taka svo við leikir í úrslitum og um sæti.
Fyrsti leikur Íslands verður í dag föstudag gegn Hvít-Rússum kl. 19:30 að íslenskum tíma, en sá leikur, líkt og allir leikir liðsins á mótinu verður í beinni útsendingu.
Hægt er að sjá alla dagskrá og nánari upplýsingar um mótið auk þess að hægt er að fylgjast með lifandi tölfræði og beinum netútsendingum frá öllum leikjunum á heimasíðu mótsins hér.
Í vetur var valinn 12 manna lið og varamenn einnig sem hafa hæft með liðinu. Síðan þá hafa tveir leikmenn þurft að draga sig úr lokaliðinu vegna meiðsla, en það voru þeir Hákon Örn Hjálmarsson ÍR og Andrés Ísak Hlynson, KR, og komu nýjir leikmenn í þeirra stað. Íslenska liðið og hópurinn er því þannig skipaður á mótinu:
U20 karla
Arnór Sveinsson · Njarðvík
Bergvin Stefánsson · Njarðvík
Bjarni Guðmann Jónsson · Skallagrímur
Björn Ásgeir Ásgeirsson · Hamar
Egill Agnar Októsson · Fjölnir
Einar Gísli Gíslason · ÍR
Gabríel Sindri Möller · Njarðvík
Hilmar Pétursson · Breiðablik
Hilmar Smári Henningsson · Haukar
Hlynur Logi Ingólfsson · Fjölnir
Orri Hilmarsson · KR
Rafn Kristjánsson · Fjölnir
Þjálfari: Ágúst S. Björgvinsson
Aðstoðarþjálfarar: Halldór Steingrímsson og Oddur Benediktsson
Sjúkraþjálfari: Inga Arna Aradóttir
Leikur kvöldsins verður í beinni útsendingu hér fyrir neðan.