Undir 18 ára lið stúlkna mun leika sinn fyrsta leik á Evrópumótinu í Ploiesti í Rúmeníu er liðið mætir Slóvakíu kl. 15:30 að íslenskum tíma,en ásamt þeim er Ísland með Tékklandi og Austurríki í riðil á mótinu. Eftir riðlakeppnina verður leikið um sæti 1-8 og 9-18.
Hér má sjá undir 18 ára lið Íslands á mótinu
Leikur dagsins verður í beinu vefstreymi hér fyrir neðan.