spot_img
HomeFréttirUndir 18 ára lið stúlkna hefur leik á Evrópumótinu í Ploiesti á...

Undir 18 ára lið stúlkna hefur leik á Evrópumótinu í Ploiesti á morgun – Ein breyting á liðinu frá NM

Undir 18 ára stúlknalið Íslands hefur leik á Evrópumótinu í Ploiesti í Rúmeníu á morgun. Fyrsti leikur er á morgun gegn Slóvakíu kl. 15:30 að íslenskum tíma, en ásamt þeim er Ísland með Tékklandi og Austurríki í riðil á mótinu. Eftir riðlakeppnina verður leikið um sæti 1-8 og 9-18. 

Á heimasíðu mótsins má lesa allt um dagskrá þess, riðla, stöðu, fá lifandi tölfræði og fylgjast með beinu vefstreymi frá öllum leikjum mótsins. Myndir og fréttir frá liðinu munu einnig koma á samfélagsmiðla KKÍ á meðan mótinu stendur.

Hérna er heimasíða mótsins

Halldór Karl Þórisson þjálfari liðsins hafði þetta að segja: „Við erum öll virikilega spennt fyrir komandi móti og undirbúningurinn búinn að vera mjög góður. Mikill stígandi er búinn að vera í liðinu síðan við komum heim af NM en það mót gaf okkur rosalega mikið til að sjá hvað við þyrftum að vinna sem helst í. Ljóst er að verkefnið verður strax mjög krefjandi þar sem við erum með mjög góðum liðum í riðli en ef stemmingin er rétt og allar með hausinn rétt skrúfaðan á tel ég okkur eiga góða möguleiki á að komast upp úr riðlunum og berjast á toppnum.

Ein breyting er á liðinu en við fáum inn Ísold sem hefur verið fyrriparts sumarsins að keppa í frjálsum íþróttum, hún kemur í staðinn fyrir Ólöfu inn í hópinn. Ég hvet alla til að fylgjast með þessu liðinu á EM því það er alveg órúlega gaman að fylgjast með þeim spila körfubolta, ákefð og dugnaður er það helsta sem einkennir þennan hóp“.

U18 stúlkna er þannig skipað:

Anna Margrét Hermannsdóttir – KR

Anna María Magnúsdóttir – KR

Bára Björk Óladóttir – Stjarnan

Elísabet Ólafsdóttir – Stjarnan

Fanney María Freysdóttir – Stjarnan

Fjóla Gerður Gunnarsdóttir – KR

Gréta Björg Melsted – Aþena

Hanna Gróa Halldórsdóttir – Keflavík

Heiðrún Hlynsdóttir – Stjarnan

Jóhanna Ýr Ágústsdóttir – Þór Þorlákshöfn

Ísold Sævarsdóttir – Stjarnan

Kolbrún María Ármannsdóttir – Stjarnan

Þjálfari: Halldór Karl Þórsson

Aðstoðarþjálfari: Auður Íris Ólafsdóttir

Aðstoðarþjálfari: Sigurbjörg Rós Sigurðardóttir

FIBA dómari: Davíð Tómas Tómasson

Sjúkraþjálfari: Andri Helgason

Fréttir
- Auglýsing -