spot_img
HomeFréttirUndir 18 ára drengir í 12. sæti Evrópumótsins í Makedóníu

Undir 18 ára drengir í 12. sæti Evrópumótsins í Makedóníu

Undir 18 ára drengjalið Íslands mátti þola tap fyrir Írlandi í umspili um 11. sæti á Evrópumótinu í Makedóníu, 62-82.

Leikurinn var sá síðasti hjá liðinu á mótinu og hafnar Ísland því í 12. sæti Evrópumótsins þetta árið.

Atkvæðamestur fyrir Ísland í dag var Thor Grissom með 16 stig og 3 fráköst. Þá skilaði Lars Erik Bragason 8 stigum, 7 fraköstum, 4 stoðsendingum og Viktor Jónas Lúðvíksson 9 stigum og 6 fráköstum.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -