spot_img
HomeFréttirUndir 16 ára stúlknalið Íslands hefur leik á Evrópumótinu í Tyrklandi á...

Undir 16 ára stúlknalið Íslands hefur leik á Evrópumótinu í Tyrklandi á morgun

Undir 16 ára stúlknalið Íslands mun á morgun fimmtudag hefja leik á Evrópumótinu í Konya í Tyrklandi. Mæta stelpurnar Bosníu í fyrsta leik kl.13:30 að íslenskum tíma. Mótinu lýkur laugardaginn 24. ágúst.

20 þjóðir taka þátt í mótinu í fjórum riðlum, Ísland er í riðli með Bosníu, Eistlandi, Litháen og Bretlandi. Eftir riðlakeppnina verður leikið um sæti 1-8, 9-16 og 17-20. Myndir og fréttir frá liðinu munu koma á samfélagsmiðla KKÍ á meðan mótinu stendur.

Hægt er að sjá allt um mótið, dagskrá leikja, riðla og stöðu, lifandi tölfræði og opið beint streymi frá öllum leikjum á heimasíðu FIBA U16 EuroBasket B-division

Hérna er heimasíða mótsins

Hákon Hjartarson þjálfari liðsins hafði þetta að segja:

” Við teymið erum klár með liðið okkar fyrir Evrópumótið.  Þrátt fyrir meiðsli lykilmanna í undirbúningi þá er liðið á mjög flottum stað og klárt í slaginn. Við fórum á Norðurlandamótið og gekk bara þokkalega þó liðið hafi verið komið stutt á veg í undirbúningnum. Núna á milli móta hefur liðið tekið miklum framförum og við erum klárar í slaginn í Tyrklandi.

Þetta er ótrúlega skemmtilegur og vel samstilltur hópur. Þær munu ná langt á því.

Markmið liðsins er skýrt. Við ætlum okkur i 8-liða úrslit. Við setjum okkar ný markmið þegar þangað er komið. Við teljum okkur vera með það sterkt lið að við getum unnið öll þessi lið. Bara spurning hvort við séum tilbúnar að leggja inn vinnuna og spila sem lið bæði varnar og sóknarlega.”

 U16 stúlkna:

Berta María ÞorkelsdóttirValur
Ingibjörg Sigrún SvaladóttirValur
Hulda María AgnarsdóttirNjarðvík
Kristín Björk GuðjónsdóttirNjarðvík
Sara Björk LogadóttirNjarðvík
Tinna Diljá JónasdóttirStjarnan
Rebekka Rut SteingrímsdóttirKR
Adda Sigríður ÁsmundsdóttirSnæfell
Þórey Tea ÞorleifsdóttirGrindavík
Hólmfríður Eyja JónsdóttirNjarðvík
Ninja Kristín LogadóttirStjarnan
Inga Lea IngadóttirHaukar

Þjálfari: Hákon Hjartarson

Aðstoðarþjálfari: Margrét Ósk Einarsdóttir

Aðstoðarþjálfari: Eygló Alexandersdóttir

Fréttir
- Auglýsing -