Undir 16 ára lið drengja og stúlkna komu til Kisakallio í Finnlandi í gær, en þar munu liðin leika á Norðurlandamóti dagana 1.-5. ágúst. Mótið fer fram í sóttvarnarbúbblu sem finnska sambandið hefur sett saman og voru allir leikmenn og starfslið prófað fyrir Covid-19 áður en nokkur samgangur átti sér stað.
Hér fyrir neðan er hægt að sjá leikjafyrirkomulag mótsins, en fyrstu leikir eru á morgun gegn Eistlandi. Hægt verður að fylgjast með lifandi tölfræði frá mótinu, beinum útsendingum og þá mun vera fréttaflutningur á Körfunni. Hlekkir á útsendingar og tölfræði munu koma inn á Körfuna snemma á hverjum leikdegi.
Hérna er 12 manna landslið undir 16 ára stúlkna
Hérna er 12 manna landslið undir 16 ára drengja
Leikir á íslenskum tíma:
1.8 Eistland – U16 Stúlkna kl. 11:15 / U16 Drengja kl. 14:00
2.8 Finnland – U16 Stúlkna kl. 12:15 / U16 Drengja kl. 15:00
3.8 Noregur – U16 Stúlkna kl. 11:15 / U16 Drengja kl. 16:30
4.8 Danmörk – U16 Stúlkna kl. 11:15 / U16 Drengja kl. 16:45
5.8 Svíþjóð – U16 Stúlkna kl. 07:00 / U16 Drengja kl. 09:00