spot_img
HomeFréttirUndanúrslitum í 11. flokki og 9. flokki karla lokið

Undanúrslitum í 11. flokki og 9. flokki karla lokið

18:58

{mosimage}

Undanúrslitaleikjum dagsins er lokið og verða það Breiðablik og KR sem eigast við úrslitum 11. flokks en Fjölnir og Njarðvík í 9. flokki karla.

Breiðablik vann Fjölni í morgun í æsispennandi leik 78-77 eftir að hafa leitt lengstum í leiknum. KR ingar byrjðu illa gegn Þór Þorlákshöfn og var leikurinn í járnum fram í hálfleik en þá stungu KR ingar af og sigruðu 101-92.

Úrslitaleikur KR og Breiðabliks fer fram á morgun klukkan 16 í Laugardalshöll.

 

Í 9. flokki karla unnu Fjölnismenn Hamar/Selfoss örugglega 77-49 en í leik Tindastóls og Njarðvíkur voru miklar sveiflur sem enduðu með 56-43 sigri Njarðvíkur.

Fjölnir og Njarðvík eigast við klukkan 14 á morgun.

 

Klukkan 12 á morgun eigast Keflavík og Haukar við í úrslitaleik 9. flokks kvenna.

 

 

[email protected]

 

 

Mynd: Jón Björn Ólafsson/karfan.is

Fréttir
- Auglýsing -