spot_img
HomeFréttirU18 leikur dagsins: Ísland mætir heimastúlkum

U18 leikur dagsins: Ísland mætir heimastúlkum

Einn leikur fer fram á Norðurlandamóti undir 18 ára liða í Södertalje í dag. Stúlknalið Íslands mætir Svíþjóð kl. 17:15 að íslenskum tíma. Drengjalið Íslands á frídag í dag, en mun næst leika gegn Finnlandi á morgun föstudag.

Hérna má sjá undir 18 ára lið drengja og stúlkna á mótinu

Þó báðar viðureignir undir 18 ára stúlkna gegn Eistlandi og Danmörku hafi tapast væri ekki hægt að segja að leikur liðsins hafi heilt yfir verið alslæmur. Í bæði skiptin var liðið nokkuð nálægt því að sigra og má því gera skóna að þær mæti tilbúnar til að ná í fyrsta sigurinn í dag.

Hérna er hægt að fylgjast með beinu vefstreymi og tölfræði frá leikjunum

Leikur dagsins

Undir 18 ára stúlkur – NM 2024

Ísland Svíþjóð – kl. 17:15

Fréttir
- Auglýsing -