Einn leikur fer fram á Norðurlandamóti undir 18 ára liða í Södertalje í dag. Drengjalið Íslands mætir heimadrengjum í Svíþjóð kl. 17:15 að íslenskum tíma. Á meðan er stúlknalið Íslands með frídag, en þær mæta heimastúlkum svo á morgun.
Hérna má sjá undir 18 ára lið drengja og stúlkna á mótinu
Íslenska liðinu hefur á köflum gengi ágætlega í leikjum mótsins til þessa. Vissulega hafa þeir tapað báðum leikjum sínum til þessa, gegn Eistlandi á mánudag og gegn Danmörku í gær, en í báðum tilvikum voru þeir ansi nálægt því að uppskera sigur.
Hérna er hægt að fylgjast með beinu vefstreymi og tölfræði frá leikjunum
Leikur dagsins
Undir 18 ára drengir – NM 2024
Ísland Svíþjóð – kl. 17:15