{mosimage}
Íslenska U 18 ára lið karla mun leika gegn Þjóðverjum um hvort liðið mun halda sér á meðal þeirra bestu. Þjóðverjar hafa tapað öllum sínum leikjum á mótinu og leggja strákarnir allt undir á miðvikudag.
Þjóðverjar enduðu í fjórða sæti H-riðils en Íslendingar í þriðja sæti G-riðils. Liðin mætast klukkan 11:30 að íslenskum tíma á morgun, miðvikudag, og verður leikurinn í beinni útsendingu á netinu. FIBAEUROPE. Í hinni viðureigninni um sæti 13-16 mætast Úkraína og Slóvenía klukkan 13:45 að íslenskum tíma, en Íslendingar mæta öðru hvoru liðinu í lokaleik mótsins. Við skulum sjá hvernig leikir liðanna hafa farið hingað til í mótinu. Þar sjáum við að Þjóðverjar hafa ekki unnið leik, en þeir hafa tapað með litlum mun gegn þjóðum eins og Ítalíu, Ísrael og Rússlandi.
Leikir Þýskalands á mótinu og úrslit í þeim:
18.07.2006 gegn Ítalíu 58-62
19.07.2006 gegn Búlgaríu 71-86
20.07.2006 gegn Ísrael 76-79
22.07.2006 gegn Rússlandi 76-80
23.07.2006 gegn Úkraínu 58-72
24.07.2006 gegn Króatíu 52-64
26.07.2006 gegn Íslandi 11:30 að íslenskum tíma
Íslendingar hafa sigrað í tveimur leikjum, Evrópumeistara Frakka og Slóvena en liðin eru í ólíkum hlutverkum. Frakkar leika til undanúrslita en Slóvenar eru að leika um sæti 13-16.
Leikir Íslenska liðsins og úrslit í þeim:
18.07.2006 gegn Spánn 55-98
19.07.2006 gegn Króatíu 55-89
20.07.2006 gegn Frakklandi 73-61
22.07.2006 gegn Lettlandi 78-98
23.07.2006 gegn Slóveníu 83-65
24.07.2006 gegn Ísrael 67-86
26.07.2006 gegn Þýskalandi 11:30 að íslenskum tíma
Í toppbaráttunni mætast í undanúrslitum Frakkar og Spánn, en Spánverjar sigruðu leik liðanna í riðlinum sem þau voru í með Íslendingum. Hin undanúrslitaviðureignin er á milli Tyrklands og Litháen. Í keppninni um sæti 5-8 leika Ítalía og Serbía annarsvegar og hinsvegar heimamenn í Grikklandi gegn Búlgaríu. Ísrael mæta Króatíu og Rússar mæta Lettum í keppninni um 9-12 sæti.
Frétt af www.kr.is/karfa