{mosimage}
(Helena Sverrisdóttir)
Íslenska 18 ára landslið kvenna tapaði með sjö stiga mun, 57-64, í lokaleik sínum í riðlinum í Evrópukeppninni í Chieti á Ítalíu og endaði þar með í 3. sæti í riðlinum á eftir Lettum og Ukraínu. Íslenska liðið þurfti að vinna leikinn með 13 stigum til þess að komast í keppni þeirra átta bestu og stelpurnar leika því um 9.-14. sæti á mótinu. Fyrsti leikurinn er gegn Englandi á þriðjudaginn en liðið spilar einnig gegn Portúgal, Makedóníu, Finnlandi og Írlandi í baráttu sinni um 9. sætið. Helena Sverrisdóttir var stigahæst gegn Lettum með 22 stig auk 13 frákasta og 5 stoðsendinga.
Leikurinn byrjaði vel, íslenska liðið komst í 10-3 og 14-7 en lettneska liðið náði að minnka muninn í 3 stig, 14-11, fyrir lok fyrsta leikhlutans. Lettneska liðið vann síðan fyrstu fimm mínútur annars leikhlutans 13-3 og náði frumkvæðinu í leiknum. Íslenska liðið minnkaði muninn í eitt stig fyrir halfleik, 29-30 og komst yfir, 43-41, þegar þriðji leikhlutinn var hálfnaður. Átta lettnesk stig í röð breytttu því fljótt og það sem eftir var leiksins var á brattann að sækja fyrir íslensku stelpurnar.
Leikurinn fór fram í miklum hita og þrátt fyrir mikla baráttu tókst stelpunum ekki að halda út og í lokin skildu sjö stig á milli liðanna, 57-64. Helena Sverrisdóttir skoraði 22 stig í leiknum en fékk að kenna á því hjà lettunum allan tímann sem brutu 15 sinnum á henni þannig að dómararnir tóku eftir en oftar en ekki vildi íslenski hópurinn fá meira þegar tekið var hart á fyrirliðanum. Helena tók alls 24 vítaskot í leiknum en hitti ekki vel hvort sem er af línunni (24/15) eða í skotum utan af velli (20/3) en hún fékk að því er virtist oft mikla hjálp frá lettnestu varnarmönnunum í klikkum sínum í kringum körfuna.
María Ben Erlingsdóttir kom næst henni með 13 stig og Bryndís Guðmundsdóttir skoraði 12 stig. Atkvæðamestar hjá íslenska liðinu í leiknum við Letta:Helena Sverrisdóttir 22 stig (13 fráköst, 5 stoðsendingar, 5 stolnir boltar, 15 fiskaðar villur)María Ben Erlingsdóttir 13 stig (7 fráköst)Bryndís Guðmundsdóttir 12 stig (6 fráköst)Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir 6 stigMargrét Kara Sturludóttir 3 stig (9 fráköst, 3 varin skot)Sigrún Ámundadóttir 1 stig (5 fráköst)
Í dag er hvíldardagur hjá liðinu en svo tekur við riðlakeppni þar sem er spilað um 9. til 14. sæti. Þar spilar íslenska liðið við England, Portúgal, Makedóníu, Finnland og Írland og er fyrsti leikurinn við Englendinga á morgun, þriðjudag.
Frétt og mynd af www.kki.is