spot_img
HomeFréttirU-15 ára landslið drengja til Danmerkur

U-15 ára landslið drengja til Danmerkur

10:00
{mosimage}

(Einar Árni Jóhannsson er þjálfari liðsins) 

U15 landslið drengja mun fara á alþjóðlegt mót í Kaupmannahöfn dagana 5.-9. júní nk. Mótið kallast Copenhagen invitational 2008. Liðið verður skipað drengjum fæddum 1993 og síðar og er þjálfari liðsins Einar Árni Jóhannsson.  

Hópurinn æfði milli jóla og nýárs og verður hópur kallaður saman aftur áður en veturinn er allur og þá mun liðið æfa stíft í maí í lokaundirbúning fyrir mótið. Enn liggur ekki fyrir fjöldi liða í mótinu en þegar eru nokkur mjög sterk lið skráð til leiks. Mótið er liður í undirbúning fyrir verkefni hópsins í U16 fyrir 2009. 

www.kki.is

Fréttir
- Auglýsing -