Hvernig líst þér á einvígið?
Þetta verður spennandi einvígi enda tvö bestu lið landsins að mætast. Snæfell kemur með mikla reynslu og stefnir á fjórða titilinn í röð meðan Keflavík er með margar af efnilegustu stelpum landsins sem hafa sýnt að þær eru tilbúnar í þetta verkefni. Ég myndi segja að þarna mætast reynslan vs æskan.
Hvað þarf Snæfell að gera til að klára þetta?
Snæfell þarf á framlagi að halda frá bekknum í þessum leikjum. Keflavík spilar á mörgum mönnum og geta spilað hraðan leik og þótt Snæfell spili einnig hratt þá gæti framlag bekkarins verið það sem skilur á milli. Einnig þyrfti Snæfell að klára þetta í sem fæstum leikjum þar leikmenn þeirra eru örlítið eldri en Keflavíkur liðsins og því gæti þreytan farið að sitja í þeim meira en í Keflavík.
Hvað þarf Keflavík að gera til að vinna?
Stoppa Aaryn! Halda uppi háu tempói og reyna að þreyta Snæfellsliðið.
Hvernig fer leikurinn í kvöld?
Snæfell vinnur með 9.
Hverjar verða Íslandsmeistarar?
Keflavík í oddaleik.