spot_img
HomeNeðri deildir1. deild karlaTveir oddaleikir á dagskrá í kvöld

Tveir oddaleikir á dagskrá í kvöld

Tveir leikir fara fram í 8 liða úrslitum fyrstu deildar karla í kvöld.

Aðeins þarf að vinna tvo leiki til þess að komast áfram í undanúrslitin og eru báðir leikir kvöldsins því oddaleikir þar sem að í báðum viðureignum hafa félögin skipt með sér tveimur sigrum.

Sindri tekur á móti Selfoss á Höfn í Hornafirði og í Forsetahöllinni á Álftanesi mæta heimamenn Skallagrím.

Áður höfði Hamar klárað einvígi sitt gegn Hrunamönnum 2-0 og sömuleiðis Vestri gegn Fjölni 2-0.

Leikir dagsins

Fyrsta deild karla:

Sindri Selfoss – kl. 19:15

Álftanes Skallagrímur – kl. 19:15

Fréttir
- Auglýsing -