Tveimur leikjum hefur verið frestað í Subway deild karla og kvenna.
Leik ÍR og Vestra sem fara átti fram í kvöld í Subway deild karla og leik Hauka og Breiðabliks sem fara átti fram annað kvöld í Subway deild kvenna hefur verið frestað vegna heimsfaraldurs Covid-19.
Leikjunum hefur ekki verið fundinn nýr leiktími.
Tilkynning:
Mótanefnd hefur frestað leik ÍR og Vestra í Subway deild karla og Hauka og Breiðabliks í Subway deild kvenna.
Leikur ÍR og Vestra var á dagskrá í kvöld, en leikur Hauka og Breiðabliks var settur á annað kvöld. Leikjunum hafa ekki verið fundnir nýr leiktími.