spot_img
HomeNeðri deildir1. deild karlaTveggja stiga sigur og Ármann leiðir 1-0

Tveggja stiga sigur og Ármann leiðir 1-0

Það var háspenna í Laugardalshöllinni í kvöld þegar Ármann fékk Breiðablik í heimsókn í fyrsta leik liðanna í 4 liða úrslitum 1. deildar karla.

Blikar voru vel undirbúnir og léku frábærlega í kvöld. Þeir höfðu yfirhöndina framan af og leiddu fram í fjórða leikhluta. Ármenningar gáfust þó aldrei upp og náðu að minnka muninn þegar leið á leikinn. Fjórði leikhluti var svo æsispennandi og endaði með frábærri flautukörfu frá Adama Darboe.

Lokatölur 114-112 og Ármann leiðir einvígið því 1-0. 

Adama var frábær í leiknum. Skoraði 21 stig, sendi 10 stoðsendingar og tók 5 fráköst. Blikar áttu boltann og tóku leikhlé þegar um 12 sekúndur voru eftir. Maalik Cartwright, sem var kominn með 19 stig og 8 stoðsendingar keyrði á körfuna en Adama náði að stíga fyrir og taka ruðning.


Ármann tók leikhlé með 4,4 sekúndur á klukkunni. Adama tók boltann inn, fékk hann aftur og keyrði að körfunni. Hann setti boltann spjaldið ofan í og skildi bara 0,1 sekúndu eftir svo að Blikar áttu ekki séns á að skora. 

Ótrúlega sætur sigur fyrir Ármenninga sem léku frábærlega á lokakaflanum og settu mörg stór skot eftir að hafa verið undir mestan hluta leiksins.

Leikur 2 verður á laugardaginn í Smáranum klukkan 16:00. 

Tölfræði leiks

Úrslit kvöldsins

Fréttir
- Auglýsing -