Elvar Már Friðriksson og Maroussi lögðu Aris með tveimur stigum í grísku úrvalsdeildinni í dag, 72-74.
Á tæpum 23 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Elvar Már fjórum stigum, sex fráköstum, þremur stoðsendingum og stolnum bolta.
Eftir leikinn eru Maroussi í 10. sæti deildarinnar með átta stig.