Íslenska kvennalandsliðið mun nú í nóvember leika tvo heimaleiki gegn Slóvakíu og Rúmeníu.
Báðir munu leikirnir fara fram í Ólafssal í Hafnarfirði, en þeir eru hluti af undankeppni EuroBasket 2025. Síðustu tveir leikir undankeppninnar munu svo fara fram í febrúar.
Nóvemberleikirnir:
Ísland-Slóvakía 7. Nóvember kl 19:30
Ísland-Rúmenía 10. Nóvember kl 17:00
Báðir eru leikirnir í samstarfi við VÍS sem bjóða á völlinn á meðan húsrúm leyfir.
Landsliðsþjálfarar tilkynntu á dögunum 15 leikmanna hóp liðsins fyrir leikina tvo. Samkvæmt fréttatilkynningu í dag hafa þó orðið tvær breytingar á liðinu, þar sem Hanna Þráinsdóttir og Agnes Jónudóttir koma inn í stað Ástu Júlíu Grímsdóttur og Evu Margrétar Kristjánsdóttur. Agnes er nýliði í hópnum, en Hanna hefur leikið tvo leiki fyrir liðið áður.
Landsliðið skipa því:
Agnes María Svansdóttir – Keflavík 2 leikir
Anna Ingunn Svansdóttir – Keflavík 10 leikir
Anna Lára Vignisdóttir – Keflavík nýliði
Dagbjört Dögg Karlsdóttir – Valur 20 leikir
Danielle Rodriquez – Fribourg nýliði
Diljá Ögn Lárusdóttir – Stjarnan 6 leikir
Eva Wium Elíasdóttir – Þór Akureyri 2 leikir
Isabella Ósk Sigurðardóttr – Grindavík 14 leikir
Kolbrún María Ármannsdóttir – Stjarnan nýliði
Sara Líf Boama – Valur 3 leikir
Thelma Dís Ágústsdóttir – Keflavík 20 leikir
Þóra Kristín Jónsdóttir – Haukar 33 leikir
Tinna Guðrún Alexandersdóttir – Haukar 6 leiki
Hanna Þráinsdóttir – Aþena 2 leiki
Agnes Jónudóttir – Haukar nýliði