Ísland tekur á móti Georgíu í 2. glugga seinni hluta undankeppni heimsmeistaramótsins 2023 næsta föstudag 11. nóvember.
Fyrir leikinn er staða Íslands nokkuð sterk í L riðil, liðið er með fjóra sigra, tvö töp og er í 3. sæti, en efstu þrjú lið riðilsins komast á lokamótið, en sigur á föstudag myndi fara langleiðina með að tryggja farmiðann. Seinni leikur gluggans er svo þremur dögum síðar 14. nóvember gegn Úkraínu á þeirra velli í Lettlandi.
Hérna er 16 leikmanna hópur Íslands
Karfan kom við á æfingu liðsins í gær og spjallaði við Tryggva Snær Hlinason lykilleikmann Íslands um leikina tvo og möguleika Íslands að tryggja sig á lokamótið.
Umfjöllun Körfunnar um íslensku landsliðin er kostuð af Lykil