Samkvæmt öruggum heimildum hefur Tryggvi Snær Hlínason kvittað undir samning við spænska liðið Valencia og kemur til með að spila með liðinu á komandi tímabili í ACB deildinni. Valencia komu öllum á óvart á síðasta tímabili og rufu sex ára einokun Real Madrid og Barcelona á titlinum. Valencia sigruðu Real Madrid í úrslitum 3:1.
Tryggvi spilaði með nýliðum Þór Akureyri í Dominosdeildinni á síðustu leiktíð en liðið náði 8. sæti deildarinnar og fór í úrslitakeppni. Þar voru þeir slegnir út af meisturum KR. Tryggvi skoraði 11 stig og tók 8 fráköst að meðaltali síðasta vetur. Síðan þá hefur Tryggvi verið að tryggja sig kyrfilega í landsliði Íslendinga.
Jón Arnór Stefánsson lék með liði Valencia sitt síðasta ár í atvinnumennsku áður enn hann hélt aftur í vesturbæinn til KR á síðasta tímabili, en hann spilaði einnig með liðinu tímabilið 2006-2007.