Á laugardag kl. 16:00 mætir Ísland liði Portúgal í Laugardalshöllinni í undankeppni Evrópumótsins 2021.
Liðið tapaði fyrsta leik þessa leikjaglugga með einu stigi fyrir Potúgal ytra, en lagði svo Sviss með sama mun síðastliðna helgi heima í Laugardalshöllinni. Nánast allt jafnt í riðlinum og þarf Ísland því sárlega á sigri að halda ætli þeir sér að komast á þriðja lokamót EuroBasket í röð.
Karfan leit við á æfingu hjá liðinu í Laugardalshöllinni fyrr í dag og hitti þar fyrir leikmann Íslands, Tryggva Snæ Hlinason.