Tryggvi Snær Hlinason og Casademont Zaragoza máttu þola tap í kvöld fyrir Pinar Karsiyaka í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu, 84-79. Karsiyaka munu því fara í úrslitin þar sem liðið mætir sigurvegara viðureignar San Pablo Burgos eða Strasbourg. Tapliðið úr þeim leik mun mæta Tryggva og félögum í leik um þriðja sæti keppninnar.
Á tæpum 6 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Tryggvi Snær tveimur stigum og frákasti.