Tryggvi Snær Hlinason og Casademont Zaragoza máttu þola tap í kvöld fyrir stórliði Real Madrid í ACB deildinni á Spáni, 65-86.
Zaragoza eru eftir leikinn í 14. sæti deildarinnar með 4 sigra og 8 töp það sem af er tímabili.
Á 18 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Tryggvi Snær 6 stigum og 3 fráköstum.
Næsti leikur Zaragoza í deildinni er þann 12. desember gegn Urbas Fuenlabrada.