Tryggvi Snær Hlinason og Casademont Zaragoza lögðu í kvöld Real Betis í framlengdum leik í ACB deildinni á Spáni, 96-95. Zaragoza eftir leikinn í 16. sæti deildarinnar með sex sigra og tólf töp það sem af er tímabili.
Tryggvi lék rúmar 24 mínútur í leik kvöldsins. Á þeim skilaði hann 9 stigum, 6 fráköstum og vörðu skoti. Næsti leikur Zaragoza í deildinni er gegn Movistar Estudiantes þann 10. janúar.