spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaTryggvi Snær og Zaragoza lutu í lægra haldi gegn Tenerife

Tryggvi Snær og Zaragoza lutu í lægra haldi gegn Tenerife

Tryggvi Snær Hlinason og Casademont Zaragoza máttu þola tap í kvöld fyrir Tenerife í ACB deildinni á Spáni, 92-69.

Á tæpum 13 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Tryggvi Snær 2 stigum, 3 fráköstum og 2 vörðum skotum.

Þrátt fyrir tapið siglir Zaragoza nokkuð lygnan sjó í neðri hluta deildarinnar, eru í 13. sæti af 18 liðum, 2 sigurleikjum fyrir ofan fallsvæðið.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -