Tryggvi Snær Hlinason og Casademont Zaragoza lögðu San Pablo Burgos í ACB deildinni á Spáni í gærkvöldi, 98-95. Eftir leikinn eru Zaragoza í 13. sæti deildarinnar með 12 sigra og 19 töp það sem af er tímabili.
Á 8 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Tryggvi Snær fjórum stigum og fjórum fráköstum. Næsti leikur Zaragoza í deildinni er komandi laugardag 24. apríl gegn Unicaja Malaga.