Tryggvi Snær Hlinason og Casademont Zaragoza lögðu Murcia í kvöld í ACB deildinni á Spáni, 91-78.
Eftir leikinn er Zaragoza í 13. sæti deildarinnar með 7 sigra og 11 töp það sem af er tímabili.
Á 16 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Tryggvi 5 stigum, 5 fráköstum og stoðsendingu.
Næsti leikur Tryggva og Zaragoza í deildinni er þann 31. janúar gegn Urbas Fuenlabrada.