spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaTryggvi Snær og Bilbao töpuðu fyrir Gran Canaria

Tryggvi Snær og Bilbao töpuðu fyrir Gran Canaria

Tryggvi Snær Hlinason og Bilbao töpuðu í kvöld fyrir Gran Canaria í ACB deildinni á Spáni, 80-67.

Á tæpum 17 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Tryggvi Snær tveimur stigum, fjórum fráköstum, þremur stoðsendingum og vörðu skoti.

Eftir leikinn er Bilbao í áttunda sæti deildarinnar af átján liðum með tvo sigra og tvö töp það sem af er tímabili.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -