Tryggvi Snær og Bilbao í öðru sæti ACB deildarinnar eftir sigur gegn Granada

Tryggvi Snær Hlinason og Bilbao lögðu Granada í dag í ACB deildinni á Spáni, 94-93.

Bilbao er nú í öðru sæti deildarinnar með fjóra sigra og eitt tap það sem af er tímabili.

Tryggvi lék tæpar 19 mínútur í leiknum, hafði hægt um sig í stigaskorun, en skilaði 3 fráköstum og v0örðu skoti.

Næsti leikur Bilbao í deildinni er þann 22. október gegn stórliði Barcelona.

Tölfræði leiks