spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaTryggvi Snær með troðslusýningu er Zaragoza lagði Unicaja

Tryggvi Snær með troðslusýningu er Zaragoza lagði Unicaja

Tryggvi Snær Hlinason og Casademont Zaragoza lögðu Unicaja Malag í kvöld í ACB deildinni á Spáni, 93-82.

Eftir leikinn er Zaragoza í 12. sæti deildarinnar með 8 sigra og 12 töp það sem af er tímabili.

Á tæpum 18 mínútum spiluðum skilaði Tryggvi 11 stigum og 10 fráköstum, en segja má að hann hafi haldið hálfgerða troðslusýningu með fjórar troðslur í leiknum.

Næsti leikur Tryggva og Zaragoza er þann 12. febrúar gegn Baxi Manresa.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -