Tryggvi Snær Hlinason og Casademont Zaragoza máttu þola tap í kvöld fyrir Manresa í ACB deildinni á Spáni, 94-73.
Eftir leikinn er Zaragoza í 12. sæti deildarinnar með átta sigra og tólf töp það sem af er tímabili.
Á tæpum 23 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Tryggvi 13 stigum, 7 fráköstum og stoðsendingu.
Næsti leikur Tryggva og Zaragoza í deildinni er þann 6. mars gegn Gran Canaria.