Tryggvi Snær Hlinason og félagar í Casademont Zaragoza lögðu Baskonia í kvöld í ACB deildinni á Spáni, 97-79
Eftir leikinn er Zaragoza í 12. sæti deildarinnar með sex sigra og níu töp það sem af er tímabili.
Á tæpum 14 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Tryggvi 5 stigum, 8 fráköstum og 2 stolnum boltum.
Næsti leikur Tryggva og Zaragoza í deildinni er þann 2. janúar gegn Unicaja.