spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaTryggvi Snær atkvæðamikill gegn Breogan

Tryggvi Snær atkvæðamikill gegn Breogan

Tryggvi Snær Hlinason og Casademont Zaragoza máttu þola tveggja stiga tap gegn Breogan í ACB deildinni, 88-90.

Eftir leikinn er Zaragoza í 15. sæti deildarinnar með þrjá sigra og tíu töp það sem af er tímabili.

Á 33 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Tryggvi 10 stigum, 5 fráköstum, 2 stoðsendingum og 3 vörðum skotum.

Næsti leikur Zaragoza í deildinni er þann 8. desember gegn Manresa.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -