Tryggvi Snær Hlinason og félagar í Bilbao máttu þola tap í kvöld gegn Baskonia í ACB deildinni á Spáni, 72-92.
Tryggvi átti nokkuð góðan leik þrátt fyrir tapið, skilaði 13 stigum, 8 fráköstum og 5 stoðsendingum
Bilbao hafa því unnið einn og tapað einum eftir fyrstu tvær umferðir ACB deildarinnar, en næsti leikur þeirra er þann 4. október gegn fyrrum félagi Tryggva Obradoiro.