spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaTryggvi öflugur í mikilvægum sigurleik á Spáni

Tryggvi öflugur í mikilvægum sigurleik á Spáni

Tryggvi Snær Hlinason og Bilbao lögðu Lleida nokkuð örugglega í ACB deildinni á Spáni í dag, 91-75.

Á tæpum 17 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Tryggvi Snær 9 stigum, 6 fráköstum, 2 stoðsendingum og 3 vörðum skotum.

Eftir leikinn er Bilbao í 12. sæti deildarinnar með 7 sigra og 12 töp það sem af er tímabili, en sigur dagsins var gífurlega mikilvægur fyrir Tryggva og félaga sem nú eru einum sigurleik fyrir ofan Girona sem eru í efra fallsætinu með 6 sigra.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -