Íslenska landsliðið lék sinn annan leik í forkeppni Eurobasket 2021 í dag þegar liðið mætti Sviss. Martin Hermannsson reyndist hetja Íslands þegar hann setti sigurkörfu Íslands á lokaandartökum leiksins og 83-82 sigur Íslands staðreynd.
Karfan ræddi við Tryggva Snæ Hlinason leikmann liðsins eftir sigurinn og má sjá viðtalið í heild sinni hér að neðan: