spot_img
HomeFréttirTryggvi Hlinason var grátlega nálægt erfiðu þrennunni

Tryggvi Hlinason var grátlega nálægt erfiðu þrennunni

Þór Akureyri mætti KFÍ í Höllinni á Akureyri í gærkvöldi en það varð heldur ójafn leikur. Þór sigraði 97-65 en athygli vakti tölfræðilína Tryggva Snæs Hlinasonar sem lauk leik með 19 stig, 14 fráköst og 9 varin skot. 1 varið skot í viðbót og hann hefði verið skráður á spjöld þrennuvaktarinnar.

 

Þeir sem ekki þekkja til Tryggva ættu að kíkja á þessa samantekt úr leik Þórs og KR í bikarnum í nóvember.

 

Fréttir
- Auglýsing -