Tryggvi Snær Hlinason og Bilbao héldu sigurgöngu sinni áfram í FIBA Europe Cup með sigri gegn BC Balkan í kvöld, 62-93.
Á rúmum 19 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Tryggvi Snær 9 stigum, 7 fráköstum og 5 stoðsendingum, en hann var næst framlagshæstur í liði Bilbao í leiknum.
Eftir leikinn er Bilbao sem áður í efsta sæti riðils síns með fjóra sigra og ekkert tap það sem af er.