spot_img
HomeNeðri deildir1. deild karlaTryggir Þór Ak sér deildarmeistaratitil í kvöld: „Einbeittir í að klára þetta...

Tryggir Þór Ak sér deildarmeistaratitil í kvöld: „Einbeittir í að klára þetta verkefni.“

Heil umferð fer fram í 1. deild karla þar sem línur geta heldur betur skýrst í kvöld. Þór Ak getur nefnilega tryggt sæti sitt í Dominos deildinni að ári með sigri í Stykkishólmi.

Þór hefði getað tryggt sér sigurinn með sigri á Hamri í síðustu umferð en Hvergerðingar voru gríðarlega sterkir í þeim leik. Fyrir leiki kvöldsins eru tvær umferðir eftir þar sem Þór Ak hefur tveggja stiga forskot á Fjölni í öðru sæti.

Þór Ak hefur betur í innbyrgðis viðureign liðanna og getur Fjölnir því ekki komist uppfyrir Akureyringa fari svo að liðin verði jöfn að stigum. Snæfell hefur hinsvegar einungis unnið einn leik í deildinni til þessa.

Því má segja að líkurnar séu með Þór í kvöld þegar liðið getur tryggt sér deildarmeistaratitilinn og þar með endurheimt sæti sitt í 1. deild karla á ný.

Viðtal Þór TV við Lárus Jónsson þjálfara Þór má finna hér að neðan:

Leikir dagsins: 

  1. deild karla:

Snæfell – Þór Ak. kl 19:15

Vestri – Hamar kl 19:15

Selfoss – Sindri kl 19:15

Fjölnir – Höttur kl 20:30

Mynd, viðtal: Palli Jóh – Thorsport.is

Fréttir
- Auglýsing -