Elvar Már Friðriksson skilaði enn einum stórleiknum fyrri Barry Bucs í gærkvöldið þegar liðið sigraði Embry Riddle 113:102 í síðasta deildarleik liðsins í deildinni. "Ísmaðurinn" eins og þeir kalla hann ytra, setti niður heil 37 stig, sendi 9 stoðsendingar og bætti við það einum 5 fráköstum. Hreint ótrúlegar tölur ef talað sé um háskólaboltann þó svo að um D2 skóla sé að ræða. Elvar hittir úr 8 af 14 þriggjastiga skotum sínum og heildina hitti hann úr 11 af 18 skotum sínum í leiknum. Svo setti hann niður 7 af þeim 8 vítum sem hann krækti sér í.
Barry lauk tímabliið með 21 sigri og 5 tapleikjum í vetur.
Sunshine State Conference úrslitakeppnin, ef svo má kalla hefst þann 1. mars og þá spila Barry gegn Florida Tech háskólanum, eða þeim skóla sem Valur Orri Valsson mun hefja leik á næsta tímabili.
No. 25 @BarryUMBB win at @ERAUMBasketball. Ice Man 37 pts, 9 ast, 5 reb, AD 30 pts, 7 reb. Bucs (21-5) host @D2SSC qtrs 7 p.m. Wed. pic.twitter.com/QbepZCUTqn
— BarryU Athletics (@GoBarryBucs) February 26, 2017