Selfoss hefur samið við Trevon Evans um að leika með félaginu í 1. deild karla á komandi tímabili. Staðfestir félagið þetta á samfélagsmiðlum fyrr í dag. Trevon er 26 ára bandarískur bakvörður sem lék allan háskólaferil sinn með University of Sioux Falls. Á lokaári sínu í skólanum (’18-’19) skoraði hann að meðaltali 23 stig í leik, tók 4 fráköst og gaf 3 stoðsendingar.
Trevon hóf atvinnumannsferil sinn í Þýskalandi strax eftir útskrift þar sem hann lék með HAKRO Merlins Crailsheim og skilaði 20.6 stigum, 4,1 frákasti og 2,3 stoðsendingum í leik og var valinn besti erlendi leikmaðurinn í deildinni sem hann lék í.