Tracy McGrady, eða T-Mac eins og hann er alltaf kallaður, hefur ákveðið að leggja NBA skóna á hilluna eftir 15 ár í deildinni.
T-Mac var valinn nr. 9 í nýliðavalinu árið 1997 af Toronto Raptors og spilaði þar lengi vel með frænda sínum Vince Carter. Stjarna hans skein skærast í Orlando þar sem hann spilaði frá 2000-2004 og einnig í Houston þar sem hann spilaði frá 2004-2009. Meiðsli hafa alltaf hrjáð hann í gegnum tíðina en hann hefur aldrei náð að spila heilt tímabil án þess að missa úr einhverja leiki vegna meiðsla.
T-Mac fer ekki frá deildinni án þess að skilja eitthvað eftir sig þrátt fyrir að hafa aldrei unnið titil. Sjö sinnum valinn í Stjörnuleikinn og var fyrstur til að senda boltann á sjálfan sig með að henda honum í spjaldið og troða, í Stjörnuleiknum 2002. Hann leiddi deildina tvisvar í stigaskori og var með 19,6 stig 5,6 fráköst og 4,4 stoðsendingar á ferlinum. Hann afrekaði það einnig að skora 13 stig á síðustu 35 sekúndunum í leik gegn San Antonio Spurs í desember 2004.
Kíkjum aðeins á frekari tölfræði af afrekum McGrady í boði TrueHoop:
Hann er einn af sjö leikmönnum í sögu NBA deildarinnar með 8 leiktímabil yfir 20 stig, 5 fráköst og 4 stoðsendingar að meðaltali á tímabili. Hinir eru Kobe Bryant (14), LeBron James (10), Michael Jordan (10), Oscar Robertson (10), Kevin Garnett (9) og Larry Bird (9).
Til eru 15 aðrir leikmenn sem eru hættir og eru með samtals 15.000 stig, 4.500 fráköst og 4.000 stoðsendingar á ferlinum. Þeir eru allir í Frægðarhöll körfuboltans.
Aðeins tveir aðrir leikmenn í sögu deildarinnar hafa náð 15.000 stigum, 4.500 fráköstum og 3.500 stoðsendingum og 500 þriggja stiga körfum á fyrstu 11 leiktímabilum sínum. Þeir eru Larry Bird og LeBron James.
Tracy McGrady var síðastur til að ná 32 stigum, 6,5 fráköstum og 5 stoðsendingum að meðaltali á leiktímabili. Aðeins þrír aðrir leikmenn í sögu deildarinnar hafa náð þeim árangri: Michael Jordan þrisvar, Wilt Chamberlain tvisvar og Elgin Baylor einu sinni.
Frábær leikmaður þegar best lét.
McGrady er hættur formlega í NBA boltanum en hefur gefið það út að hann sé tilbúinn að hlusta á tilboð annars staðar frá, eins og t.d. Kína.