Craig Pedersen þjálfari A-landsliðs karla hefur ásamt aðstoðarþjálfurum sínum valið 12 manna leikmannahópinn sem tekur þátt í Smáþjóðaleikunum hér á landi 1.-6. júní næstkomandi. Jón Arnór Stefánsson verður ekki með liðinu á Smáþjóðaleikunum þar sem Unicaja Malaga er enn að spila auk þess sem Haukur Helgi Pálsson og Pavel Ermolinskij eru frá vegna meiðsla. Brynjar Þór Björnsson, Jakob Örn Sigurðarson og Ægir Þór Steinarsson koma inn í liðið frá því í fyrra. Kristófer Acox kemur nýr inn í liðið og mun því að öllum líkindum spila sinn fyrsta A-landsliðsleik á Smáþjóðaleikunum.
Landslið karla á Smáþjóðaleikunum 2015 verður skipað eftirtöldum leikmönnum:
Axel Kárason – Svendborg, Danmörk · Framherji · f. 1983 · 192 cm · 34 landsleikir
Brynjar Þór Björnsson · KR · Bakvörður f. 1988 · 192 cm · 39 landsleikir
Elvar Már Friðriksson – Barry University USA / Njarðvík · Bakvörður · f. 1994 · 182 cm · 8 landsleikir
Helgi Már Magnússon – KR · Framherji · f. 1992 · 192 cm · 80 landsleikir
Hlynur Bæringsson – Sundsvall Dragons, Svíþjóð Miðherji · 1982 · 200 cm · 79 landsleikir
Jakob Örn Sigurðarson – Borås, Svíþjóð · Bakvörður f. 1982 · 190 cm · 67 landsleikir
Kristófer Acox – Furman University USA / KR Framherji · f. 1993 · 196 cm · Nýliði
Logi Gunnarsson – Njarðvík Bakvörður f. 1981 · 192 cm · 105 landsleikir
Martin Hermannsson – LIU University USA / KR Bakvörður · f. 1994 · 190 cm · 19 landsleikir
Ragnar Ágúst Nathanaelsson – Sundsvall Dragons (á leið í Þór Þ.) Miðherji · f. 1991 · 218 cm · 19 landsleikir
Sigurður Ágúst Þorvaldsson – Snæfell Framherji · f. 1980 · 202 cm · 53 landsleikir
Ægir Þór Steinarsson – Sundsvall Dragons, Svíþjóð Bakvörður · f. 1991 · 182 cm · 17 landsleikir
Þjálfari liðsins er Craig Pedersen.
Aðstoðarþjálfarar eru Arnar Guðjónsson og Finnur Freyr Stefánsson.
Þeir sem æfa ennþá með liðinu í kringum leikana:
Ólafur Ólafsson – Grindavík (á leið til St Clement, Frakklandi)
Hörður Axel Vilhjálmsson – Mitteldeutscher BC, Þýskaland (á við meiðsl að stríða)
Pétur Rúnar Birgisson – Tindastóll
Sigurður Gunnar Þorsteinsson – Solna Vikings, Svíþjóð
Aðrir leikmenn sem voru í æfingahóp:
Dagur Kár Jónsson – Stjarnan
Darri Hilmarsson – KR
Emil Barja – Haukar
Finnur Atli Magnússon – KR
Grétar Ingi Erlendsson – Þór Þorlákshöfn
Haukur Helgi Pálsson – LF Basket, Svíþjóð (meiddur)
Jón Arnór Stefánsson – Unicaja Malaga, Spánn (ennþá að spila með félagsliði)
Jón Axel Guðmundsson – Grindavík
Matthías Orri Sigurðarson – Colombus State University / ÍR (meiddur)
Pavel Ermolinskij – KR (meiddur)
Sveinbjörn Claessen – ÍR
Tómas Heiðar Tómasson – Þór Þ. (á leið í Stjörnuna)
Tryggvi Snær Hlinason – Þór Akureyri