spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaTíundi sigurleikur Jóns og félaga í röð

Tíundi sigurleikur Jóns og félaga í röð

Jón Axel Guðmundsson og San Pablo Burgos höfðu betur gegn Amics Castello í Primera Feb deildinni á Spáni, 71-90.

Á tæpum 28 mínútum spiluðum skilaði Jón Axel 4 stigum, 3 fráköstum, 5 stoðsendingum og 2 stolnum boltum, en hann var stoðsendingahæstur í liði Burgos í leiknum.

Jón Axel og félagar eru sem áður í efsta sæti deildarinnar, en liðið hefur unnið 17 leiki og tapað aðeins einum það sem af er tímabili.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -