spot_img
HomeBónus deildinBónus deild kvennaTíundi sigur Þórs í röð

Tíundi sigur Þórs í röð

Þór Akureyri vann sinn tíunda leik í röð í kvöld er liðið lagði Aþenu í Austurbergi í 16. umferð Bónus deildar kvenna, 85-95.

Með sigrinum fer Þór upp að hlið Hauka í 1. til 2. sæti deildarinnar með 24 stig, en Haukar eiga leik til góða gegn Grindavík á morgun. Aþena er hinsvegar á hinum enda töflunnar, í 10. sætinu með 6 stig, en tapið í kvöld var áttunda tap þeirra í röð í deildinni.

Heimakonur í Aþenu byrjuðu leikinn af nokkrum krafti og voru skrefinu á undan á upphafsmínútunum. Undir lok fyrsta leikhlutans nær Þór þó góðum tökum á leiknum, snúa taflinu sér í vil og eru þremur stigum á undan að fyrsta fjórðung loknum, 23-26. Undir lok fyrri hálfleiksins lát þær svo kné fylgja kviði og keyra forystu sína upp í 17 stig fyrir lok hálfleiksins, 41-58.

Þór heldur svo áfram þar sem frá var horfið í byrjun seinni hálfleiksins. Gera nánast útum leikinn í þeim þriðja, en munurinn fyrir lokaleikhlutann var 29 stig, 54-83. Í fjórða leikhlutanum ná heimakonur nokkuð góðu áhlaupi, minnka muninn minnst niður í 10 stig, en komast ekki lengra. Niðurstaðan að lokum nokkuð öruggur sigur Þórs, 85-95.

Atkvæðamest fyrir Þór í kvöld var Madison Sutton með 20 stig, 17 fráköst og 7 stoðsendingar. Henni næst var Amandine Justine Toi með 31 stig, 4 fráköst og 3 stoðsendingar.

Atkvæðamestar fyrir Aþenu voru Violet Morrow með 27 stig, 9 fráköst og Elektra Mjöll Kubrzeniecka með 15 stig og 4 fráköst.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -