Tindastóll hefur samið við Fanney Maríu Stefánsdóttur, Emmu Katrínu Helgadóttur, Klöru Sólveigu Björgvinsdóttur og reynsluboltann Kristínu Höllu Eiríksdóttur fyrir komandi átök í fyrstu deild kvenna.
Helgi Freyr þjálfari segist mjög ánægður með þennan þétta hóp heimastúlkna, „Ég er mjög ánægður að þessi kjarni heimastúlkna sé klár fyrir átökin í vetur. Það er mikilvægt að hafa traustan kjarna í liðinu til að byggja á. Liðið mun leggja sig fram í vetur við að spila skemmtilegan körfubolta og metnaðurinn er svo sannarlega til staðar hjá félaginu til þess. Við ætlum því að halda áfram að styrkja hópinn og vonandi fáum við fleiri fréttir af leikmönnum á næstunni.“
Myndataka: Davíð Már Sigurðsson
Grafík: Halldór Halldórsson