Tindastóll lagði Val í kvöld í Síkinu á Sauðárkróki í öðrum leik úrslita Subway deildar karla, 91-75.
Fyrsta leik einvígis liðanna vann Valur með einu stigi í Origo Höllinni síðasta föstudag, 80-79 og er einvígið því jafnt eftir leik kvöldsins. Næst mætast liðin komandi fimmtudag 12. maí í Origo Höllinni.
Vinna þarf þrjá leiki til þess að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn.
Leikur dagsins
Subway deild karla – Úrslit
Tindastóll 91 – 75 Valur
Einvígið er jafnt 1-1