Tveir leikir fóru fram í úrslitakeppni fyrstu deildar kvenna í kvöld.
Í Síkinu á Sauðarkróki lögðu heimakonur í Tindastóli lið Snæfells í þriðja skiptið og fer liðið því í úrslitaeinvígið, þar sem þær mæta annaðhvort Aþenu eða KR. Í hinum leik kvöldsins náði KR að tryggja sér oddaleik í einvígi sínu gegn Aþenu með gífurlega öruggum sigri á Meistaravöllum.
Vinna þarf þrjá leiki til að tryggja sig áfram í úrslitaeinvígið.
Úrslit kvöldsins
Fyrsta deild kvenna – Undanúrslit
Tindastóll 82 – 78 Snæfell
Tindastóll vann einvígið 3-1
KR 79 – 52 Aþena
Einvígið er jafnt 1-1